ESTA Spurningar
Fyrir neðan getur þú fundið svör við mörgum algengum spurningum um ESTA og ferðalög til Bandaríkjanna frá aðildarlöndum rafræna vegabréfakerfisins.
- 1. ESTA skilyrði
1.1 Hverjir geta sótt um ESTA?
1.2 Hvaða skilyrði þarf að uppfylla fyrir ESTA? - 2. ESTA umsóknarferli
2.1 Hvernig getur þú sótt um ESTA?
2.2 Hvenær ættir þú að sækja um ESTA? - 3. Visa (vegabréfsáritun) og ESTA
3.1 Þarftu að sækja um ESTA ef þú hefur vegabréfsáritun?
3.2 Hver er munurinn á ESTA vegabréfsáritun? - 4. Koma með flugi eða af sjó
4.1 Þarf ég samþykkt ESTA ef ég kem með flugi?
4.2 Þarf ég samþykkt ESTA ef ég kem með skipi?
4.3 Þarf ég samþykkt ESTA ef ég kem um landamæri?
1. ESTA skilyrði
1.1 Hverjir geta sótt um ESTA?
Þeir sem eiga vegabréf frá einu af 36 aðildarlöndum rafræna vegabréfakerfisins mega sækja um ESTA. Aðildarlöndin 36 eru: Andorra, Austurríki, Ástralía, Belgía, Bretland, Brunei, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Japan, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Mónakó, Noregur, Nýja-Sjáland, Portúgal, San Marinó, Singapore, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Suður Kórea, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.
1.2 Hvaða skilyrði þarf að uppfylla fyrir ESTA?
Það eru ákveðnar kröfur sem þarf að uppfylla til þess að geta sótt um ESTA. Mikilvægasta krafan er sú að vegabréfið sé raflesanlegt eða sé e-vegabréf sem byggir á því hvort,
ríkisborgaraskapur sé frá aðildarlandi rafræna vegabréfakerfisins. Frekari upplýsingar um kröfur má finna í
umsóknarpakkanum.
2. ESTA umsóknarferli
2.1.Hvernig getur þú sótt um ESTA?
Þú getur aðeins sótt um rafræna ferðaheimild í gegnum Internetið. Bandaríkjastjórn hefur sett upp vefsvæði þar sem þú getur sótt um ferðaheimildina þína. Í dag kostar ekkert að sækja um ESTA. Þrátt fyrir það gæti Bandaríkjastjórn hafið gjaldtöku á árinu 2010.
2.2 Hvenær ættir þú að sækja um ESTA?
Það er mælt með því að þú sækir um ferðaheimildina þína ef þú hyggur á ferð til Bandaríkjanna á næstu 3-6 mánuðum. Það getur tekið Bandaríkjastjórn upp að 72 stundum að svara en líklegast færðu svar innan 5-10 sekúndna.
3.Visa (vegabréfsáritun) og ESTA
3.1 Þarftu að sækja um ESTA ef þú hefur ferðamannavegabréfsáritun?
Nei. Þú þarft ekki að sækja um ESTA ef þú ert með gilda vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.
3.2 Hver er munurinn á ESTA og vegabréfsáritun?
ESTA er aðeins tengt rafræna vegabréfakerfinu og 36 aðildarlöndum þess ásamt borgurum þessara aðildarlanda. Sækja þarf um vegabréfsáritun fyrir alla þá sem ekki geta sótt um ESTA eða eru frá landi sem er ekki aðili að rafræna vegabréfakerfinu. ESTA er rafrænt umsóknarferli einstaklings á meðan vegabréfsáritun þarf að sækja í bandarískt sendiráð eða sendiskrifstofu.
4. Koma með flugi eða af sjó
4. 1 Þarf ég samþykkt ESTA ef ég kem með flugi?
Já. Ferðamenn frá aðildarlöndum rafræna vegabréfakerfisins eru skyldugir til þess að vera með gilda ESTA ferðaheimild.
4.2 Þarf ég samþykkt ESTA ef ég kem með skipi?
Já. Ferðamenn frá aðildarlöndum rafræna vegabréfakerfisins eru skyldugir til þess að vera með gilda ESTA ferðaheimild.
4.3 Þarf ég samþykkt ESTA ef ég kem um landamæri?
Nei. Í dag er ekki skylda að vera með ESTA heimild við komu í gegnum landamæri
Lögfyrirvari: ESTAOnline.com er í einkaeigu ferðaráðgjafa. ESTAOnline.com er ekki tengd Bandaríkjastjórn.


Czech
Danish
Dutch
English
Estonian
Finnish
French
German
Greek
Hungarian
Icelandic
Italian
Japanese
Latvian
Lithuanian
Norwegian
Portuguese
Slovak
Slovenian
Spanish
Swedish